þessi eilífu öskur í honum fóru alveg rosalega í taugarnar á mér.
Og það skemmir bara dramatíska/heldur alveralega andrúmsloftið í myndinni að hafa JarJar með þessar heldur ýktu hreyfingar og þessa skræku rödd.
Að mínu mati(og flestra sem ég þekki sem fylgjast með SW) er hann bara alvarlega misheppnað “comic relief”.
En svo, vegna þess að hann er þessi “elskulegi” klaufi hefur George fundist nauðsynlegt að láta feril hans í myndunum fá góðan enda þar sem hann (af öllum mögulegum) fær eitthvað mikilvægt alþingisstarf sem hálfgerður varamaður fyrir Padmé (og verður herforingi eða eitthvað þannig í ep 1).
Ég var bara heppinn að vera á þeim aldri sem fynnst svona fyndið þegar ég fór á myndina og kom því ekki hneykslaður út úr bíóinu.
Ég vil bara segja að lokum JarJar var í hópi þeirra verri hluta sem komu fyrir nýju myndirnar og ég var mjög ánægður með að hann skuli ekki hafa sagt orð í nýjustu myndinni.