Jæja já…þig langar til þess… og hvað ætlarðu að gera við hana þegar þú ert búinn að finna hana??
Ég er stelpa og horfi á Star Trek með kærastanum mínum, helst á hverjum degi (og stundum Stargate líka). Á einu ári erum við að verða búin að fara í gegn um allt TNG safnið (eitt og hálft season eftir, erum að fara að kaupa sjöunda). Svo inn á milli horfum við á TOS, Stargate og að sjálfsögðu myndirnar, ég verð samt að viðurkenna að ég sofnaði yfir þeirri fyrstu, en það var óvart, ég var mjög þreytt. Vissir þú (og fleiri) að sá sem leikstýrði fyrstu myndinni (Robert Wise I)leikstýrði líka söngleiknum West Side Story árið 1961? Þið getið séð stílinn hans, til dæmis með því að bera saman byrjunina á myndunum, frekar langdregnar eða kannski meira eins og overture…
Bara svona að deila fánýtri visku minni meðal ykkar.
P.S. Svo langt sem ég veit þá horfir tengdamamma ennþá á Star Trek, hún gerði það allavega oft.
I´m a daydreamer and a daydream believer