Nei nei, mjög fljótlega. Ég kláraði þessa mynd fyrir 16. maí. Hún er tilbúin. En…Ég var ekki alveg ánægður svo ég er að fara yfir allt núna og bæta því inn sem mér finnst vanta. Svo fer hún í hljóðsetningu hjá alvöru hljóðmanni, ég er ekkert svo sérstakur sjálfur. Þið hljótið að skilja að ég vill ekki sína það eintak sem er tilbúið núna. Það er örugglega miklu skemtilegra að sjá þetta með góðu hljóði og engum littlum göllum. Annars hefur verið sagt við mig að þetta sé nógu gott, ég sé bara allt of smámunasamur.
Hvað sem öllu líður, myndin er tilbúin. Ég ætla bara að verða ánægður sjálfur áður en ég sýni hana. Hún ætti ekki að koma síðar en 6. maí. Svo náttúrulega þarf að compressa hana fyrir netið, en það tekur ekkert svo langan tíma.