Jæja ágætu Sci-Fi áhangendur.

Eins og sum ykkar hafa tekið eftir þá hefur vantað bannar hérna uppí hægra hornið síðan áhugamálin Star Trek og Star Wars voru sameinuð svo það er tími til kominn að reyna að redda þeim málum.

Svo ég hef ákveðið að efna til samkeppni um flottasta Bannerinn og mun sá sem vinnur auðvitað fá lof þeirra sem stunda huga fyrir snjalla vinnu.

Bannerinn á að vera 245*54 pixlar.

Bannerinn þarf ekki að miðast við litinn á áhugamálinu en einfalt mál er að breyta litnum til að samræma nýjum banner.

Banner skal ekki miðast við eina Sci-Fi seríu heldur eitthvað universal, kannski persónur úr völdum Sci-Fi seríum, Darth Wader, Picard og O'Neill eða eitthvað álíka, leyfið ímyndunaraflinu að njóta sín.

Þegar þið gerið bannerinn þurfið þið ekki að taka svörtu borðana inní. Svo þið skiljið betur hvað ég á við þá eru hérna bannerarnir af Star Wars og Star Trek og verður þetta að vera í svipuðu formatti.

http://www.hugi.is/headers/startrek.gif
http://www.hugi.is/headers/starwars.gif

Allar umsóknir berast á mangudai@gmail.com og skilafrestur er til 1. október en þó get ég breytt honum ef aðstæður kalla á það.

Verður kosið úr bestu bannernum eftir að skilafrestur rennur út.

Endilega verið dugleg að senda inn og munið að það er ekki til það sem heitir lélegt, hlutir eru bara misgóðir.