Ég vil byrja á segja að ég er mjög sáttur við útkomuna úr þessari skoðannakönnun. Einsog við var að búast þegar það er svona mikið af möguleikum voru atkvæðin mjög dreifð. En þó ekki jafn dreif og ég hafði búist við það voru 4 skip sem stoðu uppúr fyrir utan auðvitað bara að velja glænýtt skip sem ég hafði sterklega búist við að flestir myndu velja. Ekki ég þó því mér finnst vera nóg af skipum til að velja úr, hvaða tímabil sem þeir velja svo að hafa þættina í. Alaveganna, þessi 4 skip sem stoðu uppúr voru Nebula með heil 9 hundraðshluta(%), Defiant með 5 hundraðshluta, Excelsior með 4 hundraðshluta og svo Akira með 4 hundraðshluta. Það sló mig hve margir völdu þau skip sem mér finnst persónulega flottustu skipin en það eru einmitt Akira, Nebula, Defiant og Excelsior skipin. Það er einsog fólk hóppist um þessa classa. Það kom mér á óvart hve margir eru sammála um hvaða skip ætti að vera í nýju seríunni og hve þessar hugmyndir samræmdust mínar(það vakti gleði í hjarta mínu :)
Ég valdi persónulega Akira en þau skip sem komu hvað sterkast til greina hjá mér önnur en Akira voru einmitt Nebula og Excelsior skipin. En því miður verður svolítið langsótt að hafa þessi skip í nýju seríunni ef hún á að gerast fyrir tíma TOS, vægast sagt.
Þangað til að Paramount býr til þáttaröð eftir mínu höfði- Lifið heil.