Það er alveg gríðarlega samkeppni milli 7of9 og Stigakaraktersins, þau eru alver hnífjöfn og hvorugt virðist ætla að láta undan - Bæði halda sig í 15prósentunum og er það hvergi í sjónmáli hver mun sigra þetta.
En fast á eftir þeim kemur Doctorinn úr Voyager og munar aðeins einu prósentustigi þar á, hann með heil 14 prósent. En næstur í röðinni kemur hinn óviðjafnanlegi Data með 12prósentustig, hann er búinn að fara hækkandi núna dag frá degi.
En hver mun sigra, er ómögulegt um að spá í þessari stöðu þar sem efstu þrjú sætin eru svo jöfn, og hið fjórða fylgir fast á eftir.
En það er aðeins eitt sem virðist ætla að angra fjöldann, og það er stóra spurningin sem fáir eiga svör við, og hún er: “Hver er Stigakarakterinn, og hvaðan kemur hann”. Ég er búinn að leggja til mikið fjármagn í að reyna að rannsaka þessa dularfullu persónu en ekkert virðist ætla að ganga hjá mér. Þessvegna bið ég ykkur lesendur um að reyna að taka höndum saman og reyna að komast í sameiningu að niðurstöðu málsins.
Ég er svo að vona að í einhverjum þættinum fengjum við að sjá framan í þennann náunga sem hylur andlit sitt svo vel að hvorki land né þjóð veit hver hann er.
Með von um gott og farsælt samstarf
Reyni