Jawar eru klárir en jafnframt undirförlir ruslakarlar eyðimerkurinnar. Þeir eru einir af fjölmörgum frumbyggjum Tatooine. Þeir eru u.m.b. einn metri á hæð, síbabblandi á sínu máli og lifa í flokkum.
Þeir klæðast grófum heimasaumuðum kuflum með hettum, þannig að það rétt svo grillir í augun.
Eins og kom fram hér áðan þá lifa og ferðast Jawar um í hópum. Þeir ferðast um í risastórum sandkröflurum og hirða upp alls konar dót og drasl sem á vegi þeirra verður, sérstaklega vélmenni og ýmiss tæki, gera við hlutina og selja svo bændum og öðrum sem á vegi þeirra verða. Einu sinni á ári, áður en storma-tíðin hefst (mikið rok), halda Jawar leynilega samkomu, þá safnast öll krílin saman á stað einum á Dune sjónum. Þar skiptast þeir á sögum og hlutum sem þeim hefur áskotnast í genum árið.