Nýleg mynd af Wendy Moniz og Frank Grillo. Þau eru gift í dag, giftu sig þann 28.október 2000 og eiga tvö börn saman, synina Liam og Rio Joseph :) Fyrir á Frank soninn Remy með fyrrverandi konu sinni sem hann skildi við árið 1998.
Þau leika parið Dinuh Marler og Hart Jessup í Leiðarljósi :)
Já, og ég í dag:) Það er svo gaman að heyra um leikara í sömu þáttum sem eru saman í alvöru, og sérstaklega ef þau léku/leika par, eins og Natalie Blair og David Hoflin (Carmella og Oliver) í Neighbours og líka Eliza Taylor-Cotter og Brett Tucker (Janae og Fitzy/Dan) úr Neighbours, en Brett er alveg 17 árum eldri en Eliza. Og svo Chad og Sophia úr OTH og fl. :)
Eru leikararnir sem leika Carmellu og Oliver ennþá saman? En leikararnir sem leika Janae og Fitzy? :) Sophia og Chad eru nefnilega löngu hætt saman minnir mig .. minnir að hann hafi verið svo heimskur að halda framhjá henni með Paris Hilton af öllum .. :P
Já, allavega seinast þegar ég vissi voru þau ennþá saman, sem var bara fyrir nokkrum dögum:) Og ég veit að Sophia og Chad eru hætt saman, hjónabandið varði í hvað, 5 mánuði…?? En what, Paris Hilton?? Veit þau léku saman í House Of Wax svo það gæti svosem verið…
Vá, skil það nú ekki… hún er alveg falleg, en ALLTOF horuð og barbieleg! Og hefur enga leikhæfileika! Sorry, en mitt álit á Paris Hilton er ekki mkið….
Já ok… hún er bara e-ð svo gervileg… meina, fyrir hvað er hún fræg?? Að eiga ríka foreldra sem eiga milljón hótel?? E´g hef nú heyrt e-ð um nýlega söng-og leikprufur hjá henni, en mér finnst hún ekkert sérstök leik-og söngkona. Og svo er hún svo horuð, að hún er eins og spýta!! Mér finnst það ekki aðlaðandi því miður…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..