Tangie Hill og Shayne Lewis í Leiðarljósi. Tangie var uppáhalds persónan mín en svo flutti hún, af ástæðum sem mig minnir eitthvað í en er ekki alveg viss. Einhver sem veit afhverju hún fór? :)
Mann ekki nákvæmlega af hverju hún fór, en mig minnir að hún hafi farið eftir að ekki var hægt að sakfella Alan fyrir e-ð varðandi Brent. Minnir að Brent (eða e-r annar) hafi haldið byssu að henni og neytt hana til að skrifa grein um hann sem myndi líta út eins og hann væri fórnarlambið í nauðgun Lucy. Alan sannfærði hana um að vera hjá honum en svo komst hún að því að Alan hafði hitt Brent og síðar játaði hann að hafa borgað Brent fyrir að hjálpa honum að hrifsa stjórnina á Spaulding fyrirtækinu frá Alan-Michael og mútaði Brent að fara úr bænum. Tangie sagði lögggunni frá þessu öllu og þó Alan sagðist fyrirgefa henni, eftir að hún hafnaði boði hans um að flýja burt, sagði hann lögfræðingnum að sýna henni enga miskun í réttarhöldunum. Þegar dómarinn ákvarðai að ekki væru nógar sannanir gegn Alan, fór Tangie frá Springfield.
Æjá! Núna man ég! Og ég hata Alan enn meira núna en ég gerði fyrir sirka klst síðan! Þoooli hann ekki.. taka Tammy af Cassie til að nota hana gegn henni! =/
Já Annie að reyna að vera mamma hennar :S Og ég trúi því varla að Cassie muni reyna að sofa hjá Josh.. eða jú ég trúi því svosem uppá hana til að fá Tammy aftur, en ég trúi því alls ekki að Josh muni sofa hjá henni!!
Nei, hann myndi pottþétt ekki gera það og ekki Cassie heldur ef hún væri ekki svona desperate, en hún getur náttlega dópað hann eða e-ð… ég samt veit ekki… Hún þyrfti allavega að gera mikið til að sannfæra hann!!
Jáá :S Ég er bara að vona að hún segi Revu, Josh og Billy frá því að Alan og Annie séu að neyða hana til þess að gera þetta og að þau hjálpi henni að plata Alan og Annie og e-ð svoleiðis.. :P
Eeeen.. hvað kallaru Alan og Annie? xD og Revu og Josh? xD Er ekki svolítið erfitt að finna svona nickname á þau? *-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..