Fyrrverandi stjúpdóttir Alexöndru, og fyrrverandi ástkona Alans. Smá profile:
Þegar Alexandra var ung, giftist hún einhverjum baróni (sem eitthvað mikið eldri en hún) og flutti til Andorra með honum. Hann átti Indiu úr fyrra hjónabandi. En Alexandra hataði bæði baróninn og nýju stjúpdótturina (hún giftist honum bara til þess að verða barónessa, og til þess að faðir hennar tæki hana í sátt, vegna ástarsambands hennar við fátækan listamann, sem gaf af sér Nick og Lujack. Hún sendi Indiu í heimavistarskóla, á meðan baróninn drakk frá sér allt vit, og hún gerði eitthvað.
Svo dó Brandon og Alexandra skildi við baróninn og hirti alla peningana hans (eða það sem var eftir af þeim, hann var líka spilafíkill). Svo flutti hún til Springfield, en India elti hana þangað, til að hefna sín á henni fyrir hönd föður síns (sem einhvera hluta vegna, var þrátt fyrir allt ástfanginn af Alexöndru, og dó, þar af leiðandi, einn, gjaldþrota og í ástarsorg).
India kúgaði son Alans, Phillip, í hjónaband. Og það hafði ýmis legt slæmt í för með sér. En svo losnaði Phillip úr hjónabandinu og India drullaði sér burt.
En India kenndi Alex alltaf um vernig fór fyrir föður sínum, þó að það hafi einungis verið henni að þakka að hann átti þak yfir höfuðið, þegar hann dó.