Ég ætla bara að copy-a það sem ég skrifaði í korki hér fyrir neðan:
Sko, ég held að flestir vita alveg hvað mér finnst um þetta allt saman. Ég HATA Stephanie og ég held alltaf með Brooke þegar þær eru að rífast sem er nú oft. Veit að nokkrir eiga örugglega eftir að skrifa e-ð um Brooke, eins og hún hefur verið með öllum körlunum í Forrester fjölskyldunni og allt það, sem mér finnst ógeðslegt, en ég samt elska Brooke! En það kaldhænðislega er að allir virðast gleyma því að Taylor er alveg eins og hún! Ég held bara að Taylor sé obsessed af Brooke því hún hefur verið með geðveikt mörgum mönnum sem Brooke hefur verið með! Hún hefur líka verið með öllum Forrester mönnunum, Ridge, Thorne og m.a.s. Eric, Nick og núna Rick, syni Brooke! Hún sem átti svo erfitt með að tengjast Jack, af því hann er sonur Brooke, og svo er hún trúlofuð öðrum syni hennar! Er hægt að vera meira twisted??? Þetta er eins og ef Brooke færi að vera með Thomas!! Hvernig myndi Taylor finnast það?! Þannig er Taylor e-ð öðruvísi en Brooke?? Svo viðurkennir Brooke allavega mistök sín, annað en Taylor sem þóttist vera algjör dýrlingur þar til upp komst um hana og James.
Núna vill Brooke fá Ridge aftur en undanfarið hefur hún verið doldið óákeðin með hvort hún vill bera með Ridge eða Nick. Ég er ekki að segja að það sé eðlilegt, en það virðast allir í þáttunum gleyma því þegar Ridge var alltaf að flakka á milli Brooke og Taylor og gat ekki ákveðið sig hvora hann vildi með hér forðum. Mér finnst Ridge t.d. eiga engan rétt á að dæma Brooke fyrir að flakka á milli hans og Nick þegar hann var alltaf að flakka milli Taylor og Brooke!
Og Stephanie… hún er nú alveg! Nú er Ridge trúlofaður Ashley og hún gæti ekki verið ánægðari með það. Ég trúi einu sinni ekki að hún vilji endilega að hann sé með Ashley, bara að það sé e-r önnur en Brooke þá er það í lagi! Svo er hún alltaf að dæma Brooke fyrir að vera svona hræðileg móðir… ok, hún er ekki fullkomin móðir, en hver er það? Stephanie er nú ekki mikið betri! Lætur við þau, sérstaklege Ridge, eins og þau séu ennþá 15 ára eða e-ð!
Og ef Ridge er svona voðalega ástfanginn af Ashley, af hverju er hann þá alltaf að hanga utan í Brooke og tala nú ekki um að kyssa hana??!! Ég get svarið það, þessi gaur er svo twisted að það hálfa væri nóg! Og hann var búinn að ákveða að vera með Brooke áður en hann komst að þessu með Jack, svo segir það ekki e-ð? Er ekki ennþá búin að sjá þáttinn í dag svo veit ekki hvað gerðist eftir föstudagsþáttinn, en hann var greinilega búinn að velja hana.
Mér finnst reyndar að Ridge og Brooke ættu ekki að vera saman, en ekki út af sömu ástæðu og Stephanie, heldur af því mér finnst Ridge einfaldlega ekki eiga hana skilið, hún á MIKLU betra skilið. Meina, hann kom hræðilega fram við hana forðum og Taylor líka. Hann var alltaf að fara frá Brooke, þess vegna var svo merkilegt þegar Brooke fór frá honum í Sydney. Svo þegar Stephanie var að reyna að taka börnin hennar af henni sem leiddi til þess að Brooke var nauðgað. Ok, Stephanie ætlaðist ekki til þess að hann nauðgaði henni, en hún hafði ekki einu sinni fyrir því að tékka á þessum gaur, meina hann hefði getað verið geðveikur morðingi eða nauðgari sem hann var nú! Og hvað gerir hún svo þegar hún kemst að þessu?? Hún fer bara! En sú gunga, hún getur einu sinni ekki horfst í augu við Brooke! Skil alveg viðbrögð hennar þegar Stephanie kom til hennar. Stephanie ætlaði ekki að láta hann nauðga henni en við vitum öll að þetta hefði aldrei gerst ef Stephanie hefði ekki farið að skipta sér af! Sem hún er alltaf að gera btw, ég held bara að lífið hennar snúist um Brooke!
Ridge og Brooke eiga barn saman, Stephanie gleymir því alltof oft. Og svo er annað, ef Brooke telst ekki sem hluti af fjölskyldunni samkvæmt Stephanie, þá telst Stephanie ekkert ferkar hluti af fjölskyldunni. Miena, hún er Douglas og giftist Eric og eignaðist með honum 3 börn (muniði, Ridge er sonur Massimo), en Brooke á líka 2 börn með Eric og var gift honum og á 1 barn með Ridge og var gift honum. Svo, ef Brooke telst ekki sem hluti af Forrester fjölskyldunni, þá telst Stephanie það ekki heldur.
Svo þetta eru mínar skoðanir um þetta, Stephanie fer hrikalega mikið í taugarnar á mér, og þó Brooke sé ekki fullkomin (langt í frá) þá hefur hún alltaf verið heiðarleg og viðurkennt að hún sé ekki fullkomin og geri mistök (annað en Taylor sem þóttist vera algjör dýrlingur þar til upp komst um hana og James).
Að mínu mati finnst mér að Ridge sé alltof mikill auli til að eiga þær hvorugar skilið, og ekki Ashley heldur, en ég held samt að þó hann sýni það mjög skringilega elski hann þær allar, allavega Brooke og Taylor. En ég held samt að Brooke sé hans sanna ást, þó hann sjálfur er kannski ekki búinn að fatta það.
Ef þið viljið fá sönnun fyrir því að Brooke og Ridge eiga að vera saman, horfiði þá á þetta video:
http://www.youtube.com/watch?v=b7Gci9v4I5I. Þetta er Behind the scenes video úr B&B og þegar það er meira en hálfnað segir Ronn Moss sjálfur (Ridge) að Brooke er hans sanna ást.
Vara ykkur við að það eru
SPOILERAR í video-inu, svo ekki kíkja ef þið viljið ekki vita.
Svo er ég búin að fá upp í kok á Thorne og Feliciu, þau eru svo barnaleg, sérstaklega Felicia! Ok ég skil að börn gera hvað sem er til að halda foreldrum sínum saman en fullorðið fólk sem er komið með börn sjálft??? Svo er þetta bara obsession hjá þeim, meina það er ekkert að gerast með Thorne og Feliciu núna nema bara þegar það kemur við Eric, Stephanie og Donnu. Og hvar eru börnin þeirra, Alexandria og Dominick??? Það er eins og þau séu búin að gleyma börnunum sínum og hugsa bara um foreldra sína. Ok, þau eru fúl af því Eri er ekki lengur með Stephanie, en come on, allt líf þeirra snýst um það! Og Ridge líka, hann hugsar bara um það og Brooke! Og svo er það ekkert bara að þau vilja ekki að hann sé með Donnu, ég held að það myndi ekki skipta neinu máli þó hann væri með annari konu á sama aldri og hann, bara ef það er ekki Stephanie er það hræðilegt!! Fyndið að sjá Feliciu að verja Stephanie svona mikið þar sem þær hötuðu hvor aðra ekki fyrir svo löngu síðan!
Þannig til að ljúka máli mínu eru uppáhalds persónurnar mína Brooke, Bridget og svo elska ég Marcus, hann er svo sætur og æðislegur!
Ég HATA Stephanie, Taylor, Ridge, Feliciu og Thorne (en mest Stephanie, Taylor og Ridge)!
TEAM LOGAN! TEAM BROOKE!