Heyrðu, ég hef alveg fullt að segja… en það er svo mikið að ég hef ekki tíma að skrifa það allt núna! Allavega finnst mér Neighbours bara æði, en síðan Didge dó hafa þeir ekki verið eins skemmtilegir.. ég elskaði Didge og hata handritshöfundana fyrir að láta hana deyja (eða frekar Eloise Mignon fyrir að vilja fara í háskóla). Svo finnst mér reyndar söguþræðirnir og persónurnar ekki eins skemmtilegar. Hef t.d. aldrei vanist því að Harold er farinn, en hann var búinn að vera næstum frá byrjun. Svo sakana ég Timmins fólksins (allavega Stingray og Dylan) og Sky og svo margir gamlir eins og Paul og Tad, Lance, Bill, Anne, Connor, Michelle og Nina (sem var leikin af söngkonunni Deltu Goodrem!). Væri til í að fá þau öll aftur! Svo er ég alltaf að vona að Dee sé lifandi e-s staðar þar sem líkið fannst aldrei og hún kemur og hún og Toadie verða sama aftur :)
Allavega, uppáhalds persónurnar mínar núna eru Declan og Donna :) Svo finnst mér Toadie alltaf jafn skemmtilegur;)
Persónurnar sem ég þoli alls ekki er Paul (þó hann geti stundum verið fyndin og stundum heldur maður að hann sé mannlegur), Elle (hún er svona á milli, getur verið góð en sýnir svo að hún er sannur Robinson) og Lyn finnst mér pirrandi eftir að hún kom aftur.