Ég var að tala um barn Cassie og Hart, R.J. (Roger Joshua:)) Cassie varð ólétt eftir Hart en sagði honum ekki frá því fyrst en Sean missti það útúr sér og Cassie sagði að Sean væri faðirinn. Hún gerði það af því Dinah var líka ólétt á sama tíma, og Hart og allir héldu að hann væri faðirinn, en hann var alls ekki faðirinn, heldur Rob, fyrrverandi maður Cassie! Dinah hafði tælt hann og til að verða ólétt og lét Hart halda að þau hefðu sofið saman þegar hann kom til hennar drukkinn eftir rifrildi hans og Cassie og sagði honum að hann ætti barnið. Cassie grunaði alltaf að hann væri ekki faðirinn en hafði enga sönnun, þó að Rob hafi sagt henni það sjálfur að þau sváfu saman (þó hann vissi ekkert um barnið).
Allavega, Hart fannst hann þurfa að hugsa um barnið og Dinuh og Cassie fannst henni hún vera fyrir og hann var alltaf að færast nær Dinuh, sérstaklega eftir að Dinah missti barnið og Hart kenndi sjálfum sér um (hann opnaði hurðina heima hjá Revu og Josh mjög harkalega því hann hélt að það væri einhver crazy stalker fyirr utan sem hafði sent Cassie sína eigin minningargrein, en það var Dinah). Cassie var svo nóg boðið þegar hann giftist henni eftir að Dinah varð fárveik og var dauðvona (hún hafði tekið blóðþrýstingatöflur Vanessu en enginn vissi af því), en Hart giftist Dinuh bara af því hún var dauðvona og fannst hann bera ábyrgð á dauða barnsins, en hann elskaði Cassie. En Dinah dó ekki en Hart var ennþá með samviskubit en vildi samt vera með Cassie og eitt kvöld þegar hann fór til Cassie klikkaðist Dinah alveg og kvekti í Jessup býlinu og var næstum búin að drepa sjálfa sig í annað sinn! Hart fékk þá ennþá meira samviskubit, sérstaklega þar sem Dinah var með ör á andlitinu og gat varla horft á sig í spegli vikum saman.
Dinah komst svo að því að Hart var faðir barns Cassie (Vanessa fattaði það og sagði henni það) en auðvitað sagði hún honum ekki neitt. Cassie fór á endanum til Chicago en ætlaði að koma aftur þegar Dinah ætlaði að ræna henni en þær lentu í snjóstormi og Cassie fékk hríðir. Dinah þurfti að taka á móti barninu í bílnum, þó hún hafi ætlað að skilja hana eftir fyrst, og Hart kom akkúrat þegar barnið var að fæðast (hann hafði komist að því að hann ætti barnið, Matt gat ekki leynt því lengur). Hann fór svo til Cassie eftir að Dinah sagði honum basically allt nema rétta faðerni barns hennar (semsagt að hún var næstum búin að drepa sig tvisvar og ætlaði að skilja Cassie eftir eina í bílnum í snjóstormi með hríðar). Casie og Hart voru happy í svona 5 mínútur þar til Cassie komst að vþí að Hart var aldrei faðir barns Dinuh, heldur Rob, og hún sagði henni að segja Hart það því hann myndi hvort sem er komast að því en Dinah klikkaðist og tók upp byssu sem Hart átti og ætlaði að skjóta Cassie en Hart kom inn og hljóp fyrir framan hana þannig Dinah skaut Hart!
Dinah er svo núna búin að flýja og Vanessa hjálpaði henni (þess vegna er hún í fangelsi og allt í rúst milli hennar og Matt). Hart er á spítalanum í mjög slæmu ástandi, kúlan er ennþá inní honum, nálægt hjartanu, þannig hann þarf að fara í aðgerð mjög fljótlega.
Ætlaði alls ekki að skrifa svona mikið, en þegar ég byrja get ég bara ekki hætt :)