Ef þú veist ekki hver Donna er þá hefuru ekki séð Nágranna í rúmt ár:) Hún kom fyrir löngu sko… nenni ekki að útskýra alveg allt, en hún kom semsagt og var doldið “creepy” fyrst þar sem hún var alltaf að stalka Ty Harper, sem þú veist líklega ekki hver er heldur. Hann er söngvari sem er með Rachel núna, þú getur bara googlað þau bæði. Donna er samt mjög skemmtileg núna, mér finnst það allavega, hún er með Ringo, eða þar til í þættinum í gær. Simon og Teagan eru tiltölulega nýkomin í þættina, en þau eru yngri systkini Donnu. Tegan virðist vera doldið svona skrýtin og pínu leiðinleg, en maður veit svosem ekki mikið um hana og Simon er frekar meinlaus og er bara alltaf að hanga e-ð… Cassandra, eða Sass eins og hún vill láta kalla sig, kom svo bara í þættinum í gær og hún er mamma Donnu. Hún er þvílíkt leiðinleg, allavega að mínu mati, opg ég get ekki beðið eftir því þar til hún fer! Hún kom bara til að fá Paul því hann er ríkur, henni er nokkuð sama um krakkana.
Vona að þetta hjálpi e-ð :)