Þessi spurning hefur komið áður, en Paul hafði ekkert með hvarf hans að gera, en hinsvegar sonur hans. Sko, veit ekki hvað þú veist mikið, en Paul á tvo syni (einn er reyndar dáinn), Robert og Cameron og svo dóttur, Elle (þríburar). Robert kom svo til Ramsay Street svona í lok ársins 2005 (það kom í ljós að hann setti sprengjuna í flugvéina sem varð allri Bishop fjölskyldunni að bana) og þóttist vera bróðir sinn, Cameron, sem var í raun og veru á spítala sem Carmella vann á þegar hún var nunna. Hann ætlaði að drepa Paul fyrir að hafa farið frá þeim þegar þau voru lítil, og reyndi það oft, en tókst aldrei (m.a. flusslysið).
Connor var að fara frá Erinsborough þegar Carmella hringdi í hann og sagði honum frá Robert (sem var í raun Cameron) á spítalanum og Connior fór að tala við Cameron (Robert í raun). Hann fór með honum inn þar sem Rob þóttist hringja í pabba sinn og bauð Connor bjór. Connor vilsi svo fara en Rob varð reiður og sagði honum að hann mætti ekki fara. Svo sást ekkert meira nema þegar Rob var að keyra bíl COnnors í burtu með e-ð aftaná eins og lak eða poka sem var mjög dularfullt. Svo var oft gefið í skyn að hann hefði drepið hann og grafið hann í bakgarðinum eða e-ð, en svo kom í ljós að Connor væri í Kína eftir að Toadie fékk e-ð sent frá honum frá Beijing. Svo hann var allavega í Kína síðast þegar ég vissi! :)