Drew var af Kirk fjölskyldunni, en þau voru ekkert mikið í þáttunum. Hann er líka vinur Stuart Ðarker (bróðir Neds og Steve) frá Oakey.
Hann kom fyrst sem bílvélavirki, að vinna hjá Lou, árið 1998 og var það alveg þangað til hann dó. Hann og Lou urðu góðir vinir og Drew fór að hafa áhuga á Libby, en flestir vissu það áður en hann fattaði það;) Þau hættu saman eftir að Libby slasaðist í mótorhjólaslysi með Steph og gat ekki eignast börn út af því. En þau byrjuðu aftur saman og kraftaverk gerðist, hún varð ólétt og þau eignuðust Ben (þó Libby og Ben voru bæði í hættu fyrst) :) Þau giftust stuttu seinna og brúðkaupið var það fallegasta sem ég hef séð á ævinni í Neighbours!!
En í júlí 2002 datt Drew af hestabki í Oakey og dó á spítalanum þar þann 29.júlí. Sá þáttur var án efa sorglegasti Neighbours þátturinn sem ég hef séð:(:(
Drew var að mati flestra æðislegasti karakterinn í þáttunum, og var næstur þeim öllum að vera fullkominn:) Ég sakna hans hrikalega! :(
Bætt við 26. september 2008 - 19:13
Meinti Stuart Parker náttlega:)