Já, ég var reyndar ekkert að pæla í þessu…
Abby og Rick komu á lögreglustöðina og Frank sagði þeim að Ross hefði beðið hana um að bera kennsl á Roy í svona “line-up”. Rick var rosa reiður við Ross, hann var að segja Abby staðreyndirnar um hvað lögfræðingur Roys á eftir að spyrja um og setja útá hana, Rick var líka reiður út af þessu Kevin máli. Abby varð hærdd og ætlaði að fara en Rick og Ross sannfærðu hana um að koma aftur inn í herbergið þar sem “line-upið” átti að fara fram, hún bar strax kennsl á Roy (sem var nr.3).
Ed kom inn á Michelle og Jesse að kyssast í eldhúsinu. Michelle sagði honum allt um að Jesse hefði náð Roy þegar hann var fyrir utan húsið þeirra og Ed þakkaði honum fyrir það. Ed sagði Michelle að hann ætlar ekki að fara til Afríku aftur strax. Ed var ennþá leiður yfir þessu commenti hjá Michelle um daginn um hann og Lillian og slys Maureen, svo kom Lillian að reyna að tala um þetta en Michelle vildi það ekki og fór út og Jesse á eftir henni. Þau fóru heim til Jesse og voru að kyssast þegar steini var kastað inn um gluggann, og Jesse sá miða á honum þar sem stóð: ,,Stop the deaf girl from testifying against Roy, or else Michelle will be six feet under“. Hann sagði Michelle ekkert um miðann. Mig grunar að vinir Roy hafi gert þetta.
Dinah kom á hótelið og fékk herbergisnúmer Hart og Cassie. Hún bankaði á hurðina og þar voru Hart og Cassie, frekar léttklædd og ”unnustuleg" því þau voru að bíða eftir félsagsráðgjafanum og lögfræðingnum. Dinah brjálaðist en akkúrat þegar þau voru að reyna að byrja að útskýra kom félagsráðgjafinn og lögfræðingurinn og þau sáu að e-ð var að. Cassie reyndi að útskýra og sannfæra Dinuh um að leika með þar til þau færu, en Dinah gerði það svo sannarlega ekki! Hún segist vera unnusta Harts, en ekki Cassie. Félagsráðgjafanum leist ekki á þetta og Cassie á ennþá minni líkur núna að fá Tammy aftur, allt Dinuh að þakka! Ráðgajfinn ráðlagði Cassie að bjarga Tammy frá fósturheimilinu. Lögfræðingurinn sagði henni að hún verði að fá sér nýjan lögmann og þau fóru bæði út. Dinah sagði að ef þau hefði bara sagt henni sannleikann hefði hún líklega tekið þátt í þessu (yeah right, hún hefði klikkast!). Hart fór til að ná í leigubíl handa Dinuh og á meðan sagði Cassie heni að hún trúir ekki að hún hefði hjálpað þeim, Dinah saðgi að það skipti ekki máli því hún getur ekki sannað neitt, og Cassie slær hana í andlitið!
Ég verð að segja að mér fannst Dinah eiga það skilið. Ég veit að hann heðfi átt að segja henni sannleikann, en það hefði ekki breytt neinu, hún hefði brjálast hvort sem er og bara bannað honum að fara. Hún eyðilagði allt fyrir Cassie og Tammy!