Það helsta er að Rick sagði Revu eftir að hún kom að það væri möguleiki að Abby hefði verið nauðgað. Þau reyndu bæði að segja henni að vakna, og það tókst á endanum, hún vaknaði, en mundi ekki neitt eftir að hafa komið inn í húsið hans Jesse. Reva sagði henni að henni hafi kannski verið nauðgað og Abby var alveg skelfingu lostin (skiljanlega…)
Cassie beið með Revu og þær byrjuðu báðar að segja sömu hlutina og höfðu enga þolinmæði (er það kannski því þær eru systur, hehe;)) Cassie sýndi henni mynd af Tammy, en sagði ekki að hún væri dóttir sín. Rick nánast því henti Michelle út þegar hún vildi tala við Abby. Hann er í svo miklu uppnámi, hann kennir henni og Jesse um þetta.
Frank heimsótti Jesse í fangelsi (hann var handtekinn fyrir þetta), og Jesse sagði hounm sannleikann, en ekki að hann hefði verið með Michelle. Hann grunar að Roy og Skeet, “vinir hans”, hafa haft e-ð með þetta að gera.
Rick trúði henni ekki þegar Michelle sagði hounm að Jesse hefði verið með henni þegar það var ráðist á Abby.
Phillip gaf Harley hund og hún ákvað að kíkja á íbúð sem Jenna var búin að finna, fyrir Harley að búa í, og þær að vinna í á daginn.
Buzz fékk e-ð kort, og Jenna heldur að það sé frá þeim sama og gaf honum blómin, það ilmar af ilmvatni.
Michelle hringdi í Marcus og sagði honum að fara í fangelsið til Jesse, sem hann gerði, fór útaf æfingu með Dahliu og Sugar. Marcus grunar Roy og Skeet líka, en Jesse vill ekki segja neitt því hann er hræddur að þeir fari á eftir Michelle. Marcus fer svo og er að reyna að ná sambandi við pabba sinn (því hann er lögmaður).
Á meðan Dahlia og Sugar héldu áfram að æfa sig og Drew tók myndir af þeim…
Svo í dag, eru aðalatriðin að Abby mundi pínu meira og sagði að Jesse hefði ekki gert þetta, og þegar Michelle sagði honum lýsinguna sem Abby gaf vissi hann alveg hver það var. Abby fór í skoðunina sem sagði að henni hefði ekki verið nauðgað (enda náði hann ekki að gera það, þó hann hafi ætlað sér það). Og Phillip og Harley sváfu saman aftur…. í nýju íbúðinni!!!