Jebb, höfundarnir og leikararnir eru búnir að neita því svo rosalega mikið að leikararnir munu leika par, og ég held að þau séu bara að reyna að koma ranghugmyndum í hausinn á okkur áhorfandanum :)
Lindsey: Af hverju ætti hann allt í einu að hringja svona símtal í hana eftir allt þetta vesen? Hann er ekki svona vitlaus að halda að hún myndi koma með. Ég held að það hafi verið læknir að hringja í hana til að segja henni að hún væri ólétt.
Brooke: Þau eru kannski að verða nánari, í gegnum Angie og allt það en þau eru bara vinir. Þau eru fullkomnir vinir. Þau hafa verið saman þannig að þau bera sterkar tilfinningar til hvors annars en samt bara vinir. Fyrir utan það, að ég hef heyrt að Sophia Bush vilji ekki leika par á móti Chad M. Murray út af því aðhann hélt fram hjá henni þegar þau voru saman… en það er bara orðrómur. Ég held að sá sem hringdi í hana var þarna the adotion agency sem vill gefa henni barn.
Af hverju Peyton? Af því að hún er búin að vera að reyna að fá hann aftur, lúmkst. Þau eru búin að rífast af því að hann er búinn að vera í afneitun um hvernig honum líður. Svo þegar hann sagði þetta við hana þarna, I hate you eða eitthvað, þá á endanum hrökk eitthvað í gang. Svona “Ég hata hana ekki… ég elska hana bara svo mikið en vildi ekki viðurkenna það af því að ég var svo sár eftir þessa ”höfnun“ en núna ætla ég að viðurkenna það” og þess vegna hringdi hann í hana.
það er mjög mikið vit í þessu finnst mér. En ég vona samt að hann hafi hringt í Brooke, nenni ekki meira Peyton væl og Lindsey æjji ég veit ekki, en allavega vona ég að Brooke sé málið..
Ég elska Lucas en mér finnst Brooke eiga betur skilið en hann. Hann sveik hana tvisvar með bestu vinkonu hennar… Mér finnst hann þurfa að vera einn í smá tíma og átta sig á sjálfum sér. Hann veit ekkert hvað hann vill, eða þorir ekki að viðurkenna það.
Mér finnst að Brooke ætti að vera sjálfstæð með fyrirtækið sitt og barn. Hún þarf ekki mann.
Ég nenni reyndar ekki meiri Peyton-væli en mér finnst Lindsey líka eiga betur skilið af því að þó Lucas segist elska hana þá er það ekki í alvöru rétt.
Það er samt einfaldast að hann sé að hringja í Lindsay en samt ekki því að bæði Peyton og Brooke eru báðar að bíða eftir öðru símtali en samt.. hann er pottþétt að hugsa rökrétt og sú eina sem mundi hugsanlega segja já við þessu er Peyton því Lindsay vill ekki giftast honum útaf henni finnst hann enn elska Peyton miklu betur og Brooke mundi miklu frekar vilja alvöru brúðkaup en PEyton er þannig týpa að henni er sama hvernig brúðkaupið er
en pælið í einu Lindsay heitir fullu nafni: Lindsay Evelyn Strauss: L.E.S. og Lucas fullu nafni: Lucas Eugene Scott: L.E.S.
Myndi einmitt halda að hún væri ekki að bíða eftir neinu símtali, held að Brooke hafi verið að fá símtal frá ættleiðingastofunni og Lindsey frá einhverjum lækni um að hún sé/sé ekki ólétt.
Ég er stór Peyton fan og ég held að hann hafi hringt í hana. Einhvertímann í síðasta eða þarsíðasta þættinum var hann að tala við Peyton og hún sagði við hann að ef hann myndi biðja hana að giftast sér/ef hún gæti fengið augnablikið aftur þar sem hann bað hana að giftast sér þá myndi hún 100% segja já.. þannig að það er mitt álit ;) :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..