Í sambandi við réttarhöldin: Josh fór með Annie í svona private herbergi og reyndi að fá hana til að segja sannleikann um allt, og hann sagði að hann myndi hjálpa henni. Því miður virkaði það ekki, hún hélt sig við sína sögu. Michelle kom með Möruh, því hún var e-ð óróleg og vildi gá hvað væri að gerast (Marah). Annie var reið yfir að hann skyldi ekki segja henni að Marah væri komin aftur til Springfield. Josh fór fram að tala við Möruh og segja henni að fara heim með Michelle. Hún spurði hvort Annie hefði logið um að Reva henti henni niður stigann, hann sagði já og hún sagðist hafa vitað það því Reva gæti aldrei gert slíkt.
Alan talaði við Annie og Annie sagðist vera hrædd um það sem Josh gæti komist að. Hún fór fram að tala við Möruh og spurði hana hvað hún og Josh voru að tala um. Þegar Marah vildi ekki svara æstist hún og tók í hana, með illkvitnislegu augnaráði. Marah varð hrædd og Reva dró Annie í burtu þegar hún kom og sá þetta og sagði henni að snerta ekki barnið sitt!
Reva sagði Griffin að nú væri öruggt að það kæmist upp um Annie, en hann var nú ekki svo vongóður fyrr en hann fékk dularfulan miða. það kom í ljós í endanum hvað stóð á miðanum því Fran kom í réttinn (einn einkaspæjari Josh hefur fundið hana), og Annie starði á hana, skíthrædd!
Hart er ekki hrifinn af því að Matt sé að segja Dinuh að Vanessa gæti verið á lífi, og hann sagði honum skoðun sína. Matt var alveg sama. Dinah sagði Nolu frá þessu og Nola sagði Matt og Dinuh að hún væri hvort sem er dáin þótt hún hefði ekki dáið í bílslysinu, því hún var veik og hún sýndi þeim blaðið með niðurstöðunum. En þá varð Matt bara ennþá vissari því Tess sagði að hún hefði farið frá manninum sínum og börnum því hún væri veik og vildi ekki vera byrði.
Og ef þú sást ekki þáttinn í dag þá bar Fran vitni, og sagði allan sannleikann um frjósemisaðgerðina og allt, að hún hefði gert hana sjálf, tvisvar, því í fyrra skiptið virkaði það ekki. Annie fór í uppnám og olli miklum látum í salnum. Eftir vitnisburð Fran töluðu Alan og Annie saman og Alan sagðist hafa borgað henni að ljúga. Síðar kom í ljós að hann borgaði henni fyrir að
segja sannleikann, svo Josh myndi hætta að trúa Annie og hjónabandið deyr.
Josh þykist vera farinn að trúa öllum hinum frekar en Annie og segist þurfa tíma að hugsa (en hann er löngu hættur að trúa henni náttlega). Ross er farinn að efast um hana líka og spurði hvort hann þyrfti að vita um e-ð annað, en auðvitað sagði hún ekki neitt.
Reva og Annie hittust í lyftunni og eru báðar vissar, Reva að það muni koma upp um allar lygar Annie, og Annie að Reva fari í fangelsi.
http://www.youtube.com/watch?v=Ifws9Ur9Lkg&feature=related - Hér er líka hægt að sjá öll réttarhöldin (part 1 byrjar á vitnisburði Blake).