Lyn fór eftir að Paul hætti með henni rétt eftir brúðkaupið þeirra (á brúðkaupsdaginn!)
Hún fór ein í brúðkaupsferðina til Maldivíueyja og fór svo til móður sinnar í Shelley Bay.
Connor hvarf eftir að hafa verið heima hjá Robert Robinson (sem þóttist vera tvíburabróðir sinn, Cameron).
Hann fattaði allt saman eftir að Carmella sagði að hún hefði sinnt sjúklingi á spítala, “Robert Robinson” (sem var í rauninni Cameron) sem líktist mjög syni Pauls. Connor setti saman 2 og 2, fattaði að Cam ætti tvíburabróður, sem átti að vera týndur í Englandi. Hann fór beint heim til Robinson-fjölskyldunnar þar sem hann hitti Robert, og sagði honum allt. Rob þóttist hringja í pabba sinn og þegar Connor ætlaði að fara, tók Rob í hann og sagði að hann þyrfti að vera.
Svo eftir á, í næsta þætti, var bara sýnt þegar Rob keyrði á bíl Connors úr Ramsay Street með e-ð yfir skottinu. Þó það hafi verið haldið fram fyrst að hann hafi dáið, þá er möguleiki á að hann sé lifandi, eftir að Connor senti einhverjar Saint Patrick's Day gjafir til Toadie, og líka Ned, Max & Steph. Það var sent frá Kína, og Toadie þekkti skriftina hans. Þó það sé ekki alveg sannað að hann sé lifandi.
Elle og Ned ætluðu að flýja frá Paul og Ned hataði manneskjuna sem hann var orðinn, en Elle hætti við, svo Ned fór bara einn, veit ekki hvert.