Ég hef fylgst með Nágrönnum (stundum lauslega en stundum vel, fer eftir því hvar ég bý) síðan um það leyti þegar Stöð 2 byrjaði að sýna þá. Það var eitthvað í kringum 1988. Það hefur komið fram hér en ég vil samt ítreka það að Nágrannar hafa alltaf verið á Stöð 2, aldrei á RÚV.
Ég man því nokkuð vel eftir því þegar Robinson, Ramsey og Mangle voru aðalfamilíurnar við götuna. Þá voru Jim Robinson (pabbi Paul minnir mig), gamla kellingin mamma hans Jim's (man ekki hvað hún heitir), dóttir Jim's (Lucy minnir mig) var bara stelpa og Scott (sonur Jim's, leikinn af Jason Donovan) var þarna líka. Svo var auðvitað Madge Ramsey og Charlene dóttir hennar (leikin af Kylie Minough). Charlene og Scott voru par. Síðan var Joe Mangle (pabbi Sky) og amma hennar (mamma Joe's) sem ég man ekki hvað hét. Hún var nú alltaf í fúlu skapi en samt fín kelling. Svo man ég ekki betur en Lou hafi verið þarna á þessum árum líka.
Bassar: Fender Precision Lyte MIJ, Fender Jazz Bass '75 RI CIJ