Þetta er allt bara planað hjá Alan og Annie, fólkið í gistihúsinu þarna og þessi Charity (hét hún það ekki annars?), nælan og legsteininn.
Þetta er allt gabb hjá þeim, Annie veit að hún er ekkert systir Revu, nema e-ð annað eigi eftir að koma í ljós, það vitum við ekkert um…
En ég er ekki viss um að þetta með myndina hafi verið e-ð planað, en kannski “til öryggis” þá sýndu A-in mynd af Annie og sagði að ef Reva spyrði e-ð hvernig hún liti út þá ætti hún að vera e-n vegin svona… ég veit ekki.
En það sem ég skil ekki er hvernig fólkið getur bara logið svona að henni, um svona alvarlegt mál. Ég fatta það ekki!!