Í gær: Elle og Paul fóru af staðnum. Carmella og Oliver meiddust ekki mikið, Oliver fékk heilahristing, en það er í lagi með hann og þau bæði:) Carmella hélt að Ray hefði gert þetta og Oliver var að fara yfir um út af þessari hefnd og því fjölskyldunni.
Elle fór á spítalann til að gá hvað kom fyrir þau, hovrt þó dóu eða ekki. Þegar hún sá að þau voru í fína lagi, líkamlega, þá hélt hún áfram áætluninni.
Hún hvetur Carmellu til að halda áfram að berjast á móti Ray, en hún segir Oliver akkúrat öfugt. Hún segir honum að hún sé á leiðinni til Ray og að hún haldi að Carmella hafi verið með byssu… hún er ótrúleg, hún Elle! oh…
Lolly kemur með hugmynd fyrir Ringo til að útskýra káfið á Rachel þegar þau kysstust, að hann hafi séð könguló (hún hatar þær) og pilsinu hennar og tekið hana án þess að hún sæi. Rachel trúði þessu ekki, en var hrifin.. :)
Lou setti upp lið-körfuboltaleik fyrir sjálfsálit Lolly, með Ringo, Rachel og Zeke. Hún er ekki mjög góð í körfubolta, það sannaðist í gær;) Hún tapaði og beraut næstum nefið í leiðinni. Hún sagði Lou að þrátt fyrir að vera léleg í íþróttum, væri hún mjög ánægð að vera hún sjálf :D
Paul fann slæði Elle hjá Ned og spyr hann um það, en Ned segir að það hafi verið e-r önnur.. og spurði af hverju Elle myndi vilja vera með honum og Paul sagði ,,já, það er rétt hjá þér";) æ æ, hann Paul…
Í dag: Carmella hitti Ray en hann fékk hjartaáfall eða e-ð í heitu samræðunum… Oliver kom og hringdi á sjúkrabíl, en Carmella hélt að Ray væri að feika. Ray sagði Carmellu að hann hefði ekki gert þetta og einhver annar væri að reyna að drepa þau.
Oliver er alveg að fá nóg af Carmellu og Elle bauð honum að fara í e-n bústað sem Paul á. Hann þáði það og hún fór að leika e-ð um að hún og Paul hefðu verið að rífast og lét hann vorkenna sér svo hann bauð henni að koma með.
Boyd er ennþá að láta Janae halda að hjónabandið eigi von. Steph sá hann og Glenn kyssast og var ekki ánægð með hvað hann væri að gera við Janae.
Hún sagði honum hug sinn á Lassiters þar sem Boyd og Glenn höfðu verið í herbergi… Hún sagði að það sem hann væri að gera væri hræðilegt, og spurði Glenn hvernig hún gæti treyst honum eftir að hann sveik Janae. Hún sagði að Boyd væri að nota fólk og væri með hverjum deginum að líkjast Bobby (pabbi Max).
Hann ákvað loksins að segja Janae sannleikann. Hún var rosa happy, var búinn að kaupa bíl handa þeim og alles þegar hann sagði að hann myndi ekki koma aftur og hjónabandið væri búið. Janae fór fram alveg niðurbrotin og grét. Það var mjög sorglegt atriði…
OH, ÉG HATA BOYD!!