Sko, ég skal reyna að skrifa þetta í stuttu máli svo þú skiljir þetta. Annie er gift Josh Lewis, og Reva Shayne er fyrrverandi kona hans. Þau héldu að hún væri dáin, en hún var allan tímann hjá einhverju Amish fólki og hafði misst minnið (þar kynntust hún og Abigail, sem er trúlofuð Rick Bauer, trúlofunarveislan var fyrir þau, Annie var gift Rick einu sinni).
Alveg síðan hún kom aftur hefur Annie verið með hana á heilanum alveg, sérstaklega núna. Reva og Josh eiga líka 2 börn saman, Möruh og Shayne.
Annie er óvirkur áfengissjúklingur og varð síðan háð pillum (er líka óvirk núna). Mín skoðun er sú að hún sé komin með nýja fíkn, Revu. Hún er svo hrædd um að Josh fari aftur til hennar, sérstaklega eftir að hún skildi við eiginmann sinn, Buzz Cooper (hún giftist honum mest til að gleyma Josh). Í hvert sinn sem hún sér hana fríkar hún út, sérstkalega ef Josh er þar.
Hún plataði Josh til að verða ólétt (setti gat á hettuna) og hefur farið tvisvar í frjósemisaðgerð, hún kúgaði vinkonu sína, Fran, til að gera aðgerðirnar. Hún varð ólétt af þeirri seinni, en hún sagði Josh að hún væri ólétt löngu áður en hún varð ólétt í raun og veru.
Svo núna er hún búin að komst að því að Reva er að leita að systur sinni sem hún vissi ekki einu sinni að væri til, mamma hennar eignaðist barn (hélt framhjá) og Reva lofaði henni að finna barnið rétt áður en hún dó og Annie er að reyna að eyðileggja/tefja leitina, senti hana m.a. í einhverja ferð til Arizona sem var bara plat. Bað vinkonu sína, Blake (konan með strákana í bílnum) að hlera símtöl eiginmanns síns, Ross, og Revu, því hann er lögfræðingur Revu.
Ég er nátlega búin að horfa á þetta síðan ég veit ekki hvenær, í allavega 6 ár eða e-ð, og ég hef séð alla þættina með Annie og síðan Reva kom aftur. Fyrst fannst mér hún mjög fín, en núna þlo ég hana ekki, ég get ekki beðið eftir að hún fari úr þáttunum!
Auðvitað vorkennir maður greyinu smá, en þeir sem hafa fylgst með þessu alveg vita að Reva og Josh eiga bara að vera saman, það er tilgangslaust fyrir Annie að reyna að halda í þetta hjónaband. Og ef þetta væri svona “meant to be”, myndi þetta þá ekki lagast af sjálfu sér, hún þyrfti ekkert að vera að reyna að laga þetta, en hún er bara að eyðileggja sambandið ennþá meira, að mínu mati.
Og með Blake, hún er aldeilis búin að búa til lygavef. Hún er gift Ross Marler, lögfræðingur Revu m.a.. Hún hefur logið að því alveg síðan hún varð ófrísk að annar tvíburinn, Kevin Ross, er ekki sonur Ross, bara Jason. Rick Bauer er faðir Kevin.
Eitt kvöldið þegar Blake hélt að Ross væri að halda framhjá sér með Amöndu Spaulding (dökkhærð Spaulding-kona með úfið og mikið hár, dóttir Alan Spaulding) fór hún á bar og hitti Rick (hann var í ástarsorg útaf Annie, hann bað hana að koma til sín aftur, en hún neitaði). Þau urðu drukkin og hann fór með hana heim, eitt leiddi að öðru og þau sváfu saman. Morgunin eftir komst hún að því að Ross veik hana aldrei með Amöndu og þau elskuðust, nokkrum klukkutímum eftir að hún var með Rick. Það getur nenfilega gerst að ef kona hefur verið með 2 köllum með stuttu millibili og veðrur ófrísk að tvíburum, þá gætu þeir báðir verið feður annars hvors strákanna. Ótrúlegt en satt.
Og það gerðist við Blake. Hún var fyrst ekki viss en svo kom það í ljós að Ross var annar pabbinn og Rick hinn, sem sagt pabbi Kevins. Hún sagði Annie þetta og mömmu sinni, Holly. Rick veit af þessu, en hann komst ekki að því fyrr en Annie sagði honum það eftir inngripið sem var haldið fyrir hana til að sannfæra hana um að fara í meðferð eftir að allir vissu um pilluát hennar. Hún hefur verið að leyna þessu síðan, sagði honum reyndar að þau kysstust en ekkert meira. Og hún var á leiðinni til Ross að segja honum sannleikann, hún gat ekki leynt þessu lengur, þegar hún varð í slysinu.
Vona að þetta útskýri allt:D
Bætt við 5. desember 2007 - 00:14
Svo geturu líka farið á www.soapcentral.com/gl/whoswho/annie.php og www.soapcentral.com/gl/whoswho/blake.php :)