Já, þetta erí 5.skiptið held ég…Mér finnst samt að þau ættu ekki að vera saman, meina þau hafa gifst 4 sinnum (bráðum 5) og það hefur aldrei gengið upp. Við vitum nú reyndar hver aðalástæðan er: Stephanie!
Svo finnst mér Ridge bara ekkert eiga hana skilið. Hann hefur sært hana svo mikið, er alltaf að hoppa á milli hennar og Taylor. Hvað er langt síðan hann og Taylor skrifuðu undir pappírana? Ekki meira en mánuður allavega, og strax er hann kominn til Brooke, og ætlar að giftast henni á morgun! Hvernig ætli Taylor bregðist við þessum fréttum?
Ég skil ekki þetta flakk á milli Taylor og Brooke, getur maðurinn ekki ákveðið sig hvora hann vill?