Vá hvað ég er sammála þér um þetta allt! Ég skildi hvorki upp né niður í þessu öllu sem Taylor sagði í dag við Brooke. Brooke hefur nánast ekkert umgengist Ridge síðan hann valdi Taylor þarna forðum daga. Svo þegar Ridge segist ætla að skilja við hana ákveður hún bara, eins og Stephanie að Brooke sé á bak við þetta allt saman.
Svo þegar Brooke sagðist vera mest umhugað um börn hennar, þau Tommas, Phips og Steff þá bara sagði Taylor að hún trúði henni ekki. Sagði að Brooke hafði ekkert haft samband við þau síðan að Ridge skildi við hana. Ég meina, við hverju býst Taylor eiginlega? Að Brooke komi bara heim til þeirra til þess að tala við börnin hennar þegar hún (Taylor) er búin að biðja hana um að koma ekki nálægt þeim? Brooke hafði bara nóg með sín börn svo af hverju ætti hún að vera að skipta sér af annara manna börnum, sem að hennar mati höfðu það bara nokkuð gott með báða foreldra sína hjá sér.
Ég var líka svo ánægð þegar Ridge lét Stephanie loksins heyra það í sambandi við sig og Brooke. Það er satt sem hann sagði í dag, þau hafa alltaf elskast og vegna þess að Stephanie hefur nánast alltaf hatað Brooke þá hefur þeim aldrei tekist alminnilega að njóta sín sem par. Ef Stephanie hefði aldrei verið svona mikil herfa og alltaf fengið það sem hún vildi hefði Ridge og Brooke fyrir löngu gifst og án þess að hafa Taylor alltaf hangandi yfir sér. Að vísu hafa þau aldrei gifst nema þegar Taylor hefur átt að vera dáin, hún er nú alltaf að deyja svo það er hægt að gifta þau af og til. Hins vegar hefur Ridge haldið fram hjá Taylor með Brooke, hann hefur þó aldrei haldið fram hjá Brooke svo maður spyr sig hvora þykir hann vænna um?