Annie hefur alltaf farið í taugarnar á mér og ég hlakka til þess dags þar sem hún verður skrifuð út úr þáttunum! Held samt að það gerist ekki í bráð þar sem hún er svo mikið case að það er endalaust hægt að láta hana gera eitthvað af sér.
Ég vona bara að Josh fái rétta dagsettningu hjá lækninum og reikni þá út að hann var í Evrópu þegar barnið var getið. Enda væri mjög gott ef barnið myndi fæðast svo ólíkt Josh sem hægt væri þannig að það færi ekki á milli mála að hann ætti það ekki. Hins vegar virðist það ganga vel hjá Blake að hilma yfir því að annar tvíburinn er ekki sonur Ross svo það tekur kannski einhvern tíma.
Hins vegar var það mjög fljót leist þegar Peter fæddist, sem átti einnig að vera barnið sem myndi bjarga hjónabandi. Það er eitthvað með þessar konur sem giftast þeim Lewis mönnum (þar að segja þær konur sem eru ekki stóru ástirnar í lífi þeirra Lewis manna) sem gerir það að verkum að þær búa bara til óléttur. Önnur náttúrulega bara með púða, hin með sæðisbanka. Spunrningin er kannski bara hvort er verra?