Sko, ég náði bara rétt endanum á þættinum en þetta er það sem ég náði :
Lyn og Paul giftust og Elle var e-ð ekkert rosalega sátt við það. Síðan “hætti” Paul með Lyn, daginn sem þau giftust þegar hann fattaði það að hann hafi sært allar konurnar í lífi sínu og vildi alls ekki særa Lyn af því að hann elskaði hana svo mikið.
En Lyn leið rosalega illa og hún sagði við Steph og Susan að Paul hafi hvort eð er sært hana.
Þegar Paul sagði Elle að hann og Lyn væru “hætt saman” varð hún alveg brjáluð og ákvað að flytja til mömmu sinnar. Lyn ætlaði að fara með Oscari í brúðkaupsferðina sína og ætlaði að hitta Flick og Shelly í leiðinni.
Lastu Þetta?..