Hver eru áhugamál þín? Að bögga fólk sem hefur önnur áhugamál eða eitthvað annað? Við erum með mismunandi áhugamál og skoðannir. Sumir hafa gaman af Leiðaljósi, enda er það ágæt afþreying þó ég segi sjálf frá. Aðrir hafa áhuga á að horfa á box, ég skil það ekki því að mér þykir það leiðinlegt. Á ég að fara að bögga fólkið sem finnst gaman að horfa á boxið bara vegna þess að mér finnst það leiðinlegt? Eins með fólkið sem horfir á eitthvað annað sem mér finnst leiðinlegt í sjónvarpinu. Nei veistu það hlítur að vera munurinn á áhugamálum okkar, ég hef ekki áhuga á að bögga fólk fyrir að hafa sínar eigin skoðannir og meiningar.