Er alveg sammála.. hehe;)
En man ekki alveg hvað gerðist hvenær og þannig, en það helsta er að það var haldin e-r veisla því Dahlia, Michelle og Bill áttu öll afmæli. Dahlia söng lag og amma hennar kom akkúrat þegar hún var að syngja, Griffin leysti hana út einhvern veginn. Hehe, og þegar Rick og Abby voru að bíða eftir lyftu af því Rick vildi fara heim, kyssti hún hann, og hann kyssti hana síðan;) Geðveikt cute:)
Roger, Dinah og Hart voru öll á býlinu og síðan kom Amanda. Bridget kom með Peter og spurði Hart hvort hann gæti passað Peter af því hún væri að fara á foreldrafund í leikskólanum eða e-ð. En Roger sagði Hart að fara líka náttlega og þau fóru á fundinn, skildu Dinuh og Roger eftir með Peter. Dinah var upptekin að tala við Amöndu og Roger laumaðist út og fór með Peter einhvert. Síðan kom auðvitað Bridget og Hart og þá var Peter horfinn. Hart var voða reiður útí Dinuh, en Peter fannst á endanum.
Alan er ekki í góðu ástandi. Ef hann verður ekki á þessu meðferðarheimili sme Phillip senti hann á gæti hann kannski aldrei gengið aftur og lamast. Hann gæti einnig verið tengdur við vélar það sem eftir er af hans lífi.
Phillip er ákveðinn í að fara frá Springfield þó að Alan-Michael sagði honum að hann vildi ekki að hann færi. Hann sagði að síðan Phillip kom til Springfield hafi hann innst inni verið glaður að fá bróður sinn aftur.
Annie stakk uppá við Josh að reyna að eignast barn, en hann vill bíða allavega þar til hún er ok. Hún getur samt ekki sætt sig við það og keypti egglosunarpakka eða e-ð. Hún beið eftir Josh á eihnverju hótelherbergi og fyrst hélt hann að það væri Reva held ég, en síðan var það hún náttlega. Hún reynir að láta líta út eins og getnaðarvörnin sé biluð eða e-ð til að verða ólétt án þess að hann viti það, og mig minnir að föstudagsþátturinn hafi endað þannig.
Æ Annie, Annie, Annie…
Já, man ekki efitr fleiru í augnablikinu.
Bætt við 9. september 2007 - 17:36
Meintí náttlega mamma Dahliu.. hehe!! :D
umm gelymdi já, að Ross tók efitr því að strákarnir eru ekki eineggja og Blake bullaði e-ð um að hún væri hrædd um að það hafi orðið mix-up á börnunum, en Rick sagði að það væri hægt að eineggja tvíburar væru ekki alltaf eins.