Ég er ekki alveg viss en var það ekki þátturinn þar sem kærastan hans David bað hann um að tala ekki svona oft við Donnu í símann? David fór svo til Donnu og þau ákváðu að reyna að lifa eftir nýjum samskiptareglum, sem þau áttu bæði nokkuð erfitt með að koma sig í (þar sem þau vilja helst deila öllu með hvort öðru).
Litli bróðir hans Stev var í heimsókn hjá þeim hjónum en hann var víst eitthvað að læra læknisfræði. Hans mesta átrúnaðargoð í lífinu er víst stóri bróðirinn svo að hann skemmti sér heldur til of mikið og var því rekinn úr læknisfræðinni og hætti því í skólanum. Stev vissi ekkert um þetta fyrr en í þættinum þegar hann fór að skamma bróður sinn fyrir að haga sér eins og smákrakki (eftir að bróðirinn var búinn að vera úti alla nóttina án þess að láta nokkurn vita af sér).
Dylan komst að því að pabbi hans dó víst ekki og reyndi að hafa upp á honum. Hann var búinn að komast að því að pabbinn hafði komið upp einhverju nýju nafni en vissi ekkert fyrir víst. Kelly og Matt fóru því með honum að reyna að hafa upp á föðurnum og þau fundu út að hann byggi í einhverri annari borg (man ekki hvar). Þau fóru því þangað og fylgdust með húsinu hans. Svo þegar pabbinn kom heim sáu þau að hann var búinn að eignast nýja konu og lítinn strák (á aldrinum 3-4 ára). Einhverra hluta vegna kom Dylan sér ekki til þess að banka upp á hjá pabbanum svo þau fóru bara aftur heim. En þátturinn endaði svo á því að það var barið að dyrum hjá Dylan og hann svarði og þá var það pabbinn sem stóð þar.
Mig minnir alla vegana að þetta hafi verið föstudagsþátturinn :)