Þegar hún byrjaði í þáttunum þá voru hún og Bree berstu vinkonur (enda Summer þá ný farin). Rachel var náttúrulega algjört viðundur vissi ekkert um það hvernig unglingar haga sér. Hún og bróðir hennar höfðu aldrei séð sjónvarp, hlustuðu bara á klassíska mússík, lásu bara klassískar og góðar bækur og gerðu ALLT sem pabbi þeirra sagði þeim að gera. Mig minnir meira að segja að þau hafi ekki borðað salgæti. En eftir að þau systkinin kyntust Bree breyttist margt í þeirra lífi enda er Rachel núna unglingur á hæðsta stigi gelgjunnar sem álítur foreldra sem einhver valdaóð skrímsli :)
Rachel og Summer kynnst svo þegar Summer kom einhvern tíman heim í einhverju skólafríinu. Fyrst hötuðu þær hver aðra enda vildu þær báðar hafa Bree alveg fyrir sig sjálfa. Bree var alveg í aungum sínum yfir þessu og leitaði ráða hjá móður sinni. Mamma hennar er náttúruelga með meira próf í samböndum ;) og ráðlaðgi henni að segja Summer og Rachel báðum einhverja lygasögu þar sem hún sagði báðum að hin hefði sagt eitthvað ljótt um sig. Að sögn mömmunar átti þetta trix að virka þannig að Bree yrði ennþá vinsælli á meðal stelpnanna. En Summer og Rachel urðu mjög reiðar og gerðu það sem mömmu Bree datt ekki í hug að þær myndu gera (þar er að segja þær töluðu saman um þetta). Þá komust Summer og Rachel að þessu öllu og urðu mjög fúlar og reiðar út í Bree. En það reddaðist allt eftir að Bree bað þær afsökunnar og þá ákváðu þær allar að verða bestu vinkonur.