Það var svona Groundhog day (hef ekki hugmynd um hvaða dýr þetta er, eitthvað ljótt nagdýr sem er stundum í bandarískum myndum), Che stakk upp á að stela því og fékk Seth með sér. Þeim misheppnaðist eitthvað og lentu í fangelsi, en Summer reddaði þessu og Che fann einhverja gellu í fangelsinu (hún var handtekin í staðin fyrir Summer).
Kirsten átti fertugsafmæli og Sandy kom henni á óvart með veislu og veseni, og þá sagðist hún vera ólétt kerlingaranginn.
Man ekki hvað gerðist hjá Ryan og Taylor, hún var hjá einhverjum sálfræðingi af því hún “stalkar” Ryan svolítið, en ég held þau hafi byrjað aftur saman í lokin á þættinum.