Illir tvíburar er einhverskonar alþjóðleg mýta sem allir kannast við en ég stór efa að nokkur þekki í raun “hinn illa tvíbura”. Það er samt eitt sem er mjög skondið við þessa “illu tvíbura” þeir eru alltaf eineggja tvíburar á móti hinum fullkomlega góða tvíbura sem allir elska. Svo venjulega kemur eitthvað fyrir þennan góða þannig að hann hverfur eða eitthvað og þá kemur hinn og þykjist vera sá góði. Það skrítna er að það falla alltaf allir fyrir þessu (líka fjölskyldan og bestu vinirnir). Maður hefði nú haldið að það fólk myndi þekkja tvíburanna í sundur. Alla vegana er það mín reynsla með svona ætingja og vini eineggja tvíbura að það þýðir mjög lítið að plata þá eitthvað. En í heimi sápuóperunnar þekkir fólkið greinilega aldrei tvíbura í sundur og því er ekkert mál að plata það svona ;)