Ástæðurnar hennar Stephanie eru hverjar?
1) Brooke hefur verið með thorne og eric auk ridge (=öllum mönnunum í fjölskyldunni) en ÚBBS! líka taylor …
Hún var í þónokkurn tíma með Thorne og ætlaði meira að segja að láta hann þykjast vera föður Thomasar. Svo voru hún og eric líka einu sinni svo gott sem par og EINA ástæðan fyrir því að ekkert varð úr því er að hún er besta vinkona Stephanie, en þar sem að stephanie og brooke eru LAAAANGT í frá vinkonur hafði brooke enga ástæðu til að láta ekki tilleiðast með eric þegar HANN var að reyna við hana (ekki öfugt!).
2)Brooke hefur sofið hjá of mörgum körlum … amk hefur hún ALDREI haldið fram hjá Ridge! eins og taylor gerði þegar hún svaf hjá geðlækninum (man ekki nafnið í augnablikinu, en hann giftist Sheilu) … og mér er skítsama þó að hún hafi haldið að hún væri að deyja! það gefur henni engan rétt til að sofa hjá næsta manni! og það versta er að Stephanie vissi af því en sagði aldrei neinum frá en hikar ekki við kasta öllum mistökum Brooke framan í hana við hvert tækifæri!
3)Brooke er slæm móðir … bíddu, bíddu það hlýtur að vera ástæðan fyrir því að Rick er EKKI einn af aðalmönnunum í rekstri Forrester, að Bridget er EKKI farsæll læknanemi (að því er við best vitum), að Thomas og tvibbarnir ERU hlaupnir að heiman að selja sig fyrir eiturlyfjum vegna þess mikla áfalls sem þeir urðu fyrir í æsku og enginn hjálpaði þeim að vinna úr, að Hope og RJ ERU í fóstri hjá vandalausum af því að mamma þeirra er alltaf úti að djamma á karlafari og hefur engan tíma til að sjá um þau …
nei bíddu þetta eru einhver önnur börn, börnin sem Brooke hefur alið upp (að hluta eða alveg) eru ÖLL mjög vel heppnuð amk so far … nema kannski ef frá er talinn einn mesti vælukjói EVER en hún var kannski bara að ala upp mjúka manninn :-)
Man ekki fleiri ástæður sem hún gefur, en bottom line: Brooke er EKKERT verri en taylor!