Ég man ekki alveg allt en hér er allavega smá af því, örugglega helling af ,,eitthvað“ eða ,,og” ;)
Joe bað Donnu um að giftast sér og að koma með sér austur en hún sagði nei og þau hættu saman
Kelly og Colin hættu saman því hann sökk henni í dópið, hún fór í meðferð og hitti brjálaða stelpu þar sem hét Tara. Kelly bauð henni að koma að búa hjá sér (og Clare og Donnu auðvitað) á meðan hún var að finna sér e-ð heimili, og Tara gerði það og var alltaf að reyna að vera eins og Kelly og bara var klikkuð, reyndi að drepa þær báðar
Steve kynntist æskuvini Clare, e-rjum prinsi af e-rju landi og þeir urðu góðir vinir, en svo varð prinsinn ástfanginn af Clare og eitthvað
Valerie og Colin byrjuðu saman, Colin keyrði of hratt eða eitthvað (sá ekki þann þátt) og þurfti að afplána 2 ár í fangelsi en hann strauk og þá hættu þau náttúrulega saman
Dylan og Brenda búa saman í London
Og já, ég er pottþétt að gleyma einhverju en þetta er svona það sem stendur upp úr ;)