Izzy er geðveikt hrædd um þessi message, video af henni og Ned að kyssast og eikkað. Það var sent til Lou og hann sá það! Hann kúgaði hana og sagði að ef hún myndi ekki láta Paul hætta að “drepa” Krambúðina myndi hann sýna Paul diskinn. Henni gengur ekki vel… Paul er svo evil, að Lou fékk nóg og lamdi hann. Dylan og Sky eiga í erfiðleikum útaf þessu Paul-Harold-Lou-máli. Dylan veit að Harold reyndi að kyrkja Paul. Izzy laug að Ned og sagði að Paul væri með heilaæxli ! Eftir að Ned kom aftur frá Sydney sá hann Elle og Stu kyssast og varð þvílíkt reiður við Stu, en núna er allt fyrirgefið held ég… Angie og Janelle fóru í boxkeppni og Angie vann. Kim reynir að fá peninga fyrir brúðkaupinu. Toadie komst að einhverju hræðilegu um Katyu en maður fær ekki að vita hvað það er. Susan veit af því og sagði Katyu að hún þyrfti kannski að nota það fyrir rétt. Rachel fékk rafstraum og Zeke hringdi á sjúkrabíl (þurfti að tala auðvitað!). Það er allt í lagi með hana núna. Steph er komin á spítala útaf krabbanum og max fór að gá að Summer útaf hún er veik. En Steph bað Boyd að segja Max sannleikann og biðja hann að koma. Steph vaknaði af draumunum sem henni var búið að dreyma um Charlie og Oscar-og hún dáin… hún ákvað að fara í aðgerðina. (En Max er ennþá ókominn).
Þetta var á síðunni minni -
http://www.blog.central.is/sapuelskandi :)
Og já, þátturinn í dag var magnaður, snerist bara um Steph og Charlie og það. Karl vildi að hún færi í keisaraskurð en hún vildi fæða barnið eðlilega. Boyd sótti Max og Summer á flugvöllinn og Max hringdi í Steph og meðan hún var í símanum missti hún vatnið. Max, Boyd og Summer urðu bensínlaus, en Boyd sótti meira bensín. Hann og Max voru eikkað fúlir við hvor annan. Susan var að hughreysta Lyn. Max, Boyd og Summer komu í tæka tíð og Steph fæddi heilbrigðan son (eðlilega) :) Þátturinn endaði að Steph og Max voru með Charlie í fanginu.