Já, ég gæti eitthvað verið að rugla þessum þætti saman við þáttinn í gær, horfði á hann á upptöku í dag áður en ég horfði á nýja þáttinn. En það sem gerðist í meginatriðum var:
Roman kom inná sjúkrastofuna með þar sem Franklin og Chiqui voru og sagði Franklin að handjárna sig við rúmið og Chiqui að kalla á lækni.(Roman fékk skot í löppina). Læknirinn kom og tók kúluna úr og fór að sækja sýklalyf. Þá tók Roman Chiqui sem gísl og ætlaði að fara með hana til Kambódíu. Franklin var semsagt fastur við rúmið og gat ekkert gert. Síðan kom Muneca og Yessica(Eða hvað sem hún heitir) og losuðu Franklin og þau voru alveg brjééél og ætluðu að bjarga Chiqui!
Það fór ekki betur en svo að þegar Franklin sá bílinn koma á mikilli ferð þá skaut hann í dekkin til að þau myndu nema staðar. En Roman sagði Chiqui bara að keyra hraðar og síðan valt bíllinn. Roman rankaði við sér og stuttu seinna Chiqui en hún var handjárnuð við stýrið og komst ekki út. Roman fór og skyldi hana eftir. Bíllinn var á hvolfi og þar var mjög grunsamlegur bensínleki og vír sem nuddaðist við annan vír og skapaði neista! Mikil eldhætta! Og annað grunsamlegt, Chiqui virtist ekki muna eftir neinu, hún vissi ekkert hver Roman var né hvað gerst hafði! Dadadaaaaaa
Pandora, Aquiles, Ariadna, Juan Angel og gaurinn sem ég man aldrei hvað heitir en býr inní herbergi á efri hæðinni í Villanueva-húsinu ákváðu að þótt að Orestes væri ekki raunverulegur Villanueva þá væri hann samt ennþá bróðir, sonur og Villanueva í þeirra augum(Gríðarlega væmið). Þau sögðu honum það og hann var gífurlega þakklátur en sagðist aldrei aftur geta liðið eins! Honum fannst hann vera öðruvísi en allir! Síðan fór hann og afneitaði mömmu sinni.
Tza Tza ætlaði að henda ösku Josema í sjóinn en áður en hún gerði það kom Orestes brunandi á ofur mótorhjólinu sínu í silfurlilju búningnum og tók hægt af sér grímuna! Síðan sagðist hann vilja blessun föður síns! Og síðan eftir mikið væl og mikinn stuðning frá Juan Angel hentu þau öskunni yfir hafið! Mikið drama þar líka!
Olimpia missti það þegar Pantoja var að yfirheyra hana út af morðinu á Gomés og hún játaði! Þá kom gaurinn úr litla herberginu í Villanueva húsinu og fékk 3 mínútur með henni! Þá fór ég á klósettið svo að ég er ekki alveg viss hvað gerðist!
Og Orestes missti það líka eftir ‘jarðarförina’ og fór í búningnum sínum á lögreglustöðina og sagðist vera Silfurliljan! Pantoja sagði að hann væri vitlaus og trúði honum ekki.
Og svo man ég ekki hvort þetta kom fram á þriðjudag eða í dag en Valentina fékk svakalegan verk í magann(Barnið í hættu?) og allt í upplausn en henni var sem betur fer sleppt úr fangelsinu. Og Beatriz er að fara til L.A. og ætlar að skilja við Alejandro. Já, og Nereida dó af völdum Rouque(Já, ég kann ekki að skrifa þetta) en öllum til mikillar furðu var hún ekki dáin heldur reis hún aftur upp og ætlar að segja frá hinu illa plotti!
Ég man ekki eftir fleiru…Fólk bætir bara við ef því langar ;)