Hugsið samt aðeins,
Hailey ólétt = Nathan getur ekki eins mikið einbeitt sér að skólastyrknum sínum og þarf að byrja að hugsa um að afla peninga til að halda þeim þrem uppi þar sem að Hailey er bara með smá vinnu en Nathan er atvinnulaus. Ef Hailey væri ólétt væri þetta eins og endurtekning á sögu, Nathan er Dan og Hailey er Karen. Mjög mikið drama í kringum það!! Peningavandamál og svo veit maður aldrei hvað Nathan getur gert og hvort hann sé alltof líkur föður sínum eða ekki…?
Brooke ólétt = Lucas myndi gera allt til að hjálpa henni, eins og þegar hún hélt að hún væri ólétt í síðustu seríu. Reyndar þá er hún enginn snillingur í skóla og finnst gaman að skemmta sér, á ekkert heimili og fleira. En ég er alveg 100% viss um að ef hún væri ólétt þá myndi bæði Lucas og Karen leggja allt á sig til að hjálpa henni, Karen væri auðvitað ekkert sátt þar sem að þetta væri smá (samt ekki eins mikið og ég saðgi áðan með Hailey og Nathan) endurtekning á sögunni.
og btw, það var ekki sagt í þættinum að Brooke væri ólétt eina sem var sagt að “þú ert pottþétt ólétt” og báðar sátu þær þarna, þú veist ekkert hvort hún var að tala við Brooke að Hailey.