Izzy fattaði að það er Harold sem reyndi að drepa Paul, en enginn trúir henni. Þegar hún spurði Harold út í það varð hann geðveikt skrítinn svo hún fór bara, og hann kýldi í einhvern spegil og braut hann.
Lyn þarf að fara að rukka einhverja vinkonu sína fyrir Paul og hún er eitthvað ósátt við það.
Stingray finnst hann hafa alltof lélegar græjur fyrir kvikmyndatökuna og Dylan féllst á að styrkja hann. Dylan og Kim fóru saman að kaupa græjur, en Kim vildi endilega fara fyrst á bretti og tókst loksins að telja Dylan á það, en peningunum hans var stolið á meðan, 2000 dollurum sem áttu að fara í græjukaupin.
Man ekki meira. Það hefur varla verið neitt merkilegt.