Þetta er nú bölvuð smámunasemi í þér og einhver þörf fyrir að vera rosalega klár og leiðrétta aðra, þú ert grunnskólakennari (ekki satt?).
Charlene var auðvitað hluti af Ramsay fjölskyldunni og ef þú manst rétt var þetta ávallt Robinson á móti Ramsay. Svo gekk bróðir hennar ávallt undir nafninu Henry Ramsay og voru þau bæði mjög stolt af sínu Ramsay nafni enda voru þau öll hörkutól upp til hópa. Var það ekki líka þannig að þau hötuðu pabba sinn sem barði alltaf mömmu þeirra, þannig að þetta Mitchell nafn er nú ekki merkilegt í sögulegu samhengi. Ég held að allir sem horfðu á þættina í þá gömlu góðu daga þegar þeir voru skemmtilegir (sem þeir eru alls ekki núna, helv. drasl) muni eftir Charlene sem Ramsay og engu öðru.
Svo hvað er gaurinn að bulla um hana sem frægasta karakter, spurningin er besti. Og var Charlene í miklu uppáhaldi hjá ansi mörgum. Frægð og gæði þurfa ekki endilega að fara saman, en karakterinn var hinsvegar mjög þekktur sem slíkur.