Ninfa, Aquiles og Joel voru að æfa í leikritinu og það gekk vel.
Chiqui kom til Franklin og sagði honum að hún hataði Ariödnu og Lorenzo eftir það sem þau gerðu. Franklin reyndi að hugga hana og sagði síðan að hún væri dekurrófa en væri innst inni lítil stelpa með tilfinningar. Chiqui varð reið og fór heim og Franklin á eftir henni.
Yessica var þar og Franklin handtók hana.
Pandora var í sama klefa og hún. Yessica tók síðan af henni alla skartgripina…
Jordi lagði niður ákæruna á Pandoru og Juan Angel kom til að fara með hana heim.
Síðan kom konan sem Jordi býr hjá núna (man ekki hvað hún heitir) og sagði að Jordi vildi ekkert með hana að hafa og þær fóru að rífast.
Yessica sagði Franklin að hún væri alvöru mamma Chiqui og fór að gruna að hann væri hrifinn af Chiqui. Lögreglustjórinn sem Yessica batt fasta við tré kom inní klefann og hún kyssti hann en hann sagðist ekki vera hrifinn af þjófum.
Valentina kom heim og Rogue hótaði að drepa hana ef hún myndi ekki láta hann fá skjölin um Olimpiu (kyrkti hana næstum) en síðan kom Benigno og bjargaði henni. Hún fékk asmakast og Orestes kom og allt bjargaðist.
Síðan vildi hann tala um Olimpiu og var að hugsa hvort það væri satt sem Valentina sagði, að Olimpia hefði drepið pabba Valentinu.
Tza Tza, Josema, Consuelito og Gladiola lásu í blaðinu um að silfurliljan ætlaði að fara í viðtal.
Valentina og Ninfa voru úti að versla þegar Rogur skaut hana (þær sáu hann ekki). En hún slapp útaf búningnum.
Rita sagði Munecu að Yessica væri frænka hennar og Muneca henti henni út.
Muneca sagði Chiqui að hún elskaði ekki Orestes, hún elskar Franklin, sem er rétt.
Chiqui sagði síðan mömmu sinni að nún gæti hún ekki logið lengur og fór. Þá fór hún til Orestes og sagði honum að barnið væri ekki hans.
Já, vona að ég gleymdi engu:)