Jámm, þátturinn snerist mest um Revu og brúðkaupið.
Alex sagði að þessi kona á spólunni, Rebecca, væri Reva Shayne. Hún sagði ekki hver hún væri og að hún hefði verið gift (er) Josh
en hún sagði Buzz að hún hefði verið gift Alan. Hún sagði Buzz að stöðva Revu og Alan. Hún fór í brúðkaupið
En Susan brá geggjað mikiðvið að sjá hnífinn og reyndi að flýja en ég held að Brent hafi annaðhvort stungið hana smá eða hún datt. S'iðan ætlaði hann að fara eða eikkað.
Það kom upp úr kafinu að Nick ætlar að biðja Susan um að giftast sér og hann var áhyggjufullur af því Susan var ekki komin.
Reva og ALan voru að kyssast og lögðust í sófann, þá fór Reva að hugsa um hana og Josh að kyssast, hún sagði honum að hætta. Síðan kom Buzz og var að reyna að tefja þau, Alan fór að sækja eikkað og Buzz spurði síðan af hverju hún væri að fara, hverju hún væri að flýja frá. Reva vildi ekki svara en Buzz kallaði hana síðan Revu og þá sagði Reva eikkað ,,Þú veist hver ég er, er það ekki?"
Alex var á leiðinni í hringekjuna í brúðkaupið og þá bilaði bíllinn þannig hún þurfti að labba þangað.
Það fór allt úrskeiðis í brúðkaupinu, rafmangið fór en það lagaðist, síðan þurfti Shayne að fara í klósettið og Marah var svo hrædd um að klúðra öllu….en þau giftust á endanum og Alex kom þarna og kallaði að Reva væri lifandi en enginn heyrði í henni.