uuuu…. það sem ég man eftir:
Toadie heldur að Ned sé hommi, en hann er það ekki, er hrifinn a Izzy og kyssti hana meira að segja…. Ned hélt síðan að Toadie væri hommi…!
Connor stal peningum frá búðinni til að gefa Carmellu og lét líta út eins og einhverjir hefðu stolið peningunum. En Carmella kom með þá aftur. Nú er hún búin að segja honum að hún hafi fengið peningana frá mömmu sinni og hann þurfi ekki að skulda neitt. Connor sagði síðan Serenu frá öllu og hún varð reið.
Izzy komst að því að Elle hafði verið búin að setja pillur í matinn hennar. Hún setti síðan pillur sjálf í mat sem Elle var að elda og þegar Paul komst að því að Elle væri búin setja pillur í matinn hennar þá ætlaði hann að henda henni út en skipti um skoðun.
Elle spurði Ned hvort hann gæti reynt við Izzy eða eikkað þannig en hann neitað. Hann sagði Elle frá einhverju leyndarmáli sínu en það kom ekki fram hvað það var.
Paul bað Karl í skemmtiflugvélina í tilefni 20 ára afmælis Lassiters en hann afþakkaði og sagði honum að bjóða Alex og Susan í staðinn.
Sky var að fríka út útaf lokaprófunum og gat ekki einbeitt sér að lesa. Ekki heldur Stingray útaf ráninu og því. Síðan kom hún til Dylans, Stingray og Bree og þau fóru bara eikkað að skemmta sér! Síðan í prófinu hringdi síminn hjá Dylan en Susan tók hann af honum. Síðan hringdi síminn aftur eftir prófið og það var Roo að segja að hann ætlaði að gera löggunni byssuna með fingraförum hans.
Ég hef kannski gleymt einhverju en farðu bara í korkana fyrir neðan:)