Michael og Sydney giftust og Sydney stal brúðarkjólnum hennar Jane.
Michael fór í brúðkaupsferð með Sydney til að drepa hana en gat það ekki á endanum.
Sydney er ennþá að kúga Michael útaf bílslysinu og því.
Jane hótaði að ef Michael og Sydney myndu skilja þá myndi hún gera e-ð í sambandi við pappírana sem hún var með um að Michael hafi verið drukkinn og “drepið” Kimberly.
Jo drap Reed í sjálfsvörn og er nú ólétt eftir barnið hans.
Jo réð eina fyrirsætu (Sarah) og kærastinn hennar (Hank), lamdi hana og brjálaðist eitt kvöldið. Sarah fór heim til Jo og Hank kom og brjálaðist, hann henti “óvart” Jo niður. Þannig endaði gærþátturinn! (Er ekki búin að sjá í dag)
Jake hatar núna Billy eftir að hafa komist að nóttinni milli hans og Amöndu.
Alison og Billy ætla að gifta sig.
Jámm, mamma Amöndu kom aftur og Amanda er reið útí hana fyrir að hafa farið frá henni þegar hún var lítil.
Kimberly kom aftur já, Michael fór alveg í sjokk. Hún sagði að hann þyrfti að skilja við Sydney og hann gerði það. Það leið yfir Sydney þegar hún sá Kimberly. Hún er með ör eftir bílslysið og er með hárkollu. Þess vegna var hún með svona mikinn hausverk.
Já, man ekki eftir meiru nema pabbi Alison réð einhvern brúðkaupsskipuleggjara sem var óþolandi kona!
Og er ekki búin að sjá síðan í dag….