Skoooo……..
Þau fóru á eitthvað sveitabýli sem að fjöskylda Orestes á og ætluðu að taka upp auglýsinguna þar. Allavegna þegar þau voru á leiðinni þá rigndi svo rosalega mikið að aðeins Orestes og Bella/Valentina komust að húsinu og voru þau því ein í húsinu og til að gera langa sögu stutta að þá sváfu þau saman. Daginn eftir kom Chicki og Frank og hún sá þau saman og varð brjáluð og drakk sig fulla. Kvöldið eftir að þetta gerðist þá gistu þau á hóteli (man ekki afhverju) og Chicki endaði á því að sofa úr sér í herbergi Bellu og á meðan hún var sofandi þá talaði hún upp úr svefni og sagði hver það var sem að nauðgaði henni og Bella ákvað að hefna fyrir Chicki og líka til að sína að Ariadna hefði ekkert að gera með Roman vegna þess að hann væri ekki nógu góður fyrir hana.
Ummmm……
Þegar það var að líða að giftingar dag þeirra Ariödnu og Roman að þá sagði Bella að hún myndi byrja með Roman (minnir mig) ef hann myndi hætt við að giftast Ariödnu. Þannig að þegar að stóri dagurinn kom og allir mættir í kirkjuna og brúðkaupið var byrjað og tilvonandi brúðhjón voru mætt upp að altarinu að þá stóð Bella upp og Roman sagði við prestinn að hann vildi ekki giftast Ariödnu vegna þess að hann væri ástfanginn af annari og þar með gekk hann út minnir mig og Ariadna var alveg ónýt og held ég strunsaði út úr kirkjunni og sienna um daginn svaf hjá Lorenzo og konan hans kom að þeim og hún varð brjáluð og fór heim svo kom Lorenzo stuttu seinna og bað um skilnað og þá henti hún honum út. Roman komst að því að Ariadna hafði sofið hjá Lorenzo vegna þess að þau höfðu tekið upp þegar þau voru í rúminu og hann varð alveg snælduvitlaus og fór og lamdi Lorenzo.
Um……….
Bella komst yfir skjölin sem sýndu það að þau hefðu verið fölsuð og Olimpia var hent í fangelsi og var hún þar í einhvern tíma á meðan kom fyrrum eiginmaður Olimpiu í bæinn (hann semsagt losnaði úr fangelsi eftir 25 ár) og þau hittust og hún vill eiginlega ekkert með hann hafa og það eru einhverjar vangaveltur núna hvort Orestes sé sonur hans en það hefur ekkert kom í ljós. En allavegna á með Olimpia var í fangelsi þá tók Bella yfir húsinu og henti öllu sem Olimpia átti.
Hérna……….
Ninfa og hinn sonurinn sem sem rosalega skotin í henni bað hana um að giftast sér og keypti handa henni brúðakjól en það veit eiginlega enginn að þau séu trúlofuð.
Veistu þetta er allt sem ég man í augnablikinu vonandi að þetta dugi þér og ég skal skrifa meira ef ég man.
Kveðja
Blaa (á erfitt með að skrifa eitthvað svona gróflega :Þ)