Garg alltaf að vinna frá 8-6 og á laugardögum líka svo ég er búin að missa úr geðveikt mikið, hvað er í gangi??? Er það í sambandi við að Amber og Thomas eru í sambandi eða þannig?
Jámm, hún er flutt aftur til Los Angiles og er farin að vinna hjá Spectra. Hún var að tala við Stephanie þegar henni varð flökurt. Steph fór með hana til læknis og hringdi í Thomas að það gæti verið að Amber væri ólétt. Amber sagði að hún væri ekki ólétt, að læknirinn hafi sagt að hún gæti ekki eignast börn eftir að hún missti annað barnið sitt. En hún man það ekki alveg.. Nú eru þau að bíða eftir niðurstöðunum.
Og ég veit ekki alveg… Mér finnst þetta doldið ógeðslegt samt, að vera með stjúpbróðir fyrrverandi mannsins síns, en ef þetta er ógeðslegt, af hverju er þá ekki sambandið milli Caitlin og Thomas líka ógeðslegt? Caitlin er jafngömul Thomas og Rick er á aldur við Amber??
Ahm, fatta samt ekki hvað Brooke er að væla endalaust, hún ætti nú að halda sér saman þegar kemur að svona finnst mér. Búin að vera gift/í sambandi við Eric, syni hans sem eru ekki synir hennar líka, eignast barn með manni dóttur sinnar og man ekki fleira eins og er O.o og svo er hún að kvarta yfir Amber O.o
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..