ummmmm man ekki allt en það sem ég man er þetta: Man ekki hvort það var í síðustu viku að vikunni á undan sem að ariadna var að fara gifta sig. Allavegna Bella sagði við Roman að hún myndi byrja með honum eða eitthvað álíka ef að hann hætti við að giftast hinni sem hann gerði en Bella var bara að plata hann, hún ætlaði aldrei að byrja með honum og hann er eitthvað fúll yfir því. UMMM eftir brúðkaupið þá fóru allir heim og Bella fór til Villeneuv (hvernig sem það er skrifað) hússins sem sagt húsið sem hún átti að erfa eftir mömmu sína en Olimpia “stal” því frá henni. Allavegna Bella fór til þeirra og sagði þeim að hún ætti húsið og að Olimpia hefði falsað undirskriftina og Frank var með Bellu og tók Olimpiu fasta og hún lenti í fangelsi og er þar enn. Svo ákvað Rocke hvolpur Olimpiu að játa á sig sökina svo að hún þyrfti ekki að vera í fangelsi en í staðinn þá var honum líka hent í fangelsi fyrir að ljúga eða eitthvað álíka. Bella fór svo að taka til í húsinu og henti öllu sem Olimpia átti í ruslið.
Ummm…… Pabbi Chicki minnir mig svaf hjá Ariadna og konan hans kom að þeim þess vegna vill hann skilnað. hmmmm…… ég man eiginlega ekki meira vona að þetta sé skiljanlegt og að þetta hafi hjálpað eitthvað.
kveðja
Blaa