Uuu, ég er bara nýbyrjuð að horfa á þessa þætti en þú veist að Orestes er Silfurliljan, og hérna, það kom einhver inní húsið (fyrirtækið), sem þóttist vera silfurlijan, af því Orestes var þarna, en ég veit ekki hver það er. En hann tók Bellu/Valentinu og Orestes sem gísla og Franklin og Chiqui (kann ekki alveg að skrifa öll nöfnin) eltu þau á bíl. Síðan fór “Platsilfurliljan” útúr bílnum með Orestes og Bella/Valentina fékk asmakast og kafnaði næstum. En “silfurliljan” hljóp í burtu og Bella jafnaði sig.
Já, í byrjun kenndi Franklin Chiqui að skjóta úr byssu og sjálfsvarnardæmi…
En þjónustustúlkan í húsinu (veit ekki alveg hvað hún heitir) fann spólu af Roman og kærustu hans (man ekki nafnið hennar heldur) í rúminu og hún horfði á það, en síðan kom strákurinn inn sem bað hana að giftast sér og spurði hana aftur en hún svaraði engu.
Já, ég man ekki eftir neinu öðru merkilegu, jú nema að Bella og Roman komu með þá uppástugu um að Valentina fengi 50% í fyrirtækinu og e-ð.
Fyrirgefðu að ég man ekki öll nöfnin og svona, ég er bara nýbyrjuð að horfa á þetta. En mér finnst þetta samt skemmtilegt:D:D